Var að versla mér eitt stykki grill áðan í úper súper Aldi market, já þeir klikka ekki á lágu prísunum. Enda þýsk "gæðakeðja" þar á ferð, er ekki þýskaland þekkt fyrir þessi massa gæði eins og tildæmi bmw, audi, aeg, miele og siemens og áfram mætti lengi telja. Ég held samt að þetta sé svona massa herferð hjá þjóðverjunum um að láta alla hina halda að gæði er það fyrsta sem maður hugsar um þegar að maður sér eitthvað frá germaníu.. Svona er samt ekki litið á þýsku súpermarkaðina í dk, þar versla aðallega rónarnir og fátæka fólkið sem lifir langt undir fátæktarmörkum(meðal annars námsmenn). Verst finnst mér þó sýstemið í þessum búðum, sko þú setur matinn upp á færibandið og svo rúllast maturinn niður fyrstu 20 metranana og þar situr kassadaman, eftir að hún er búin að skanna matinn inn þá þarft þú að vera í viðbragðsstöðu til að grípa matinn og pakka honum niður, af því að það er ekkert pláss eftir kassann! Svo ferðu á annað borð með matinn út um allt og pakkar honum þar niður. Niðurstaðan er sú að ég hef hreinlega ekki taugar í að versla þarna, annað en grill af því að ég er ekki þessi úber fljóta týpa. Hvað er málið með þetta!! Svo eru þessir markaðir ALdi og Liddl svo hrikalega ódýrir með sumt að ég held að það sé eitthvað suspicius í matnum hjá þeim, það er kanski þess vegna sem að þjóðverjarnir eru ekki myndalegri?
onsdag, maj 02, 2007
tirsdag, maj 01, 2007
HEHEM smá bjútý fæl á síðunni, en gefið mér séns, þetta kemur allt með kalda vatninu og fyrir ykkur sem vita ekki um global warming hér í dk, þá er hér kort oversigt..

Ég þoli ekki fólk sem er að hjóla massa hratt á morgnanna og þetta fólk er mest fyrir öllum á hjólastígnum af því að það heldur að það sé að taka þátt í ólympíuleikunum um hver kemur fyrstur í skólann/vinnuna. Jamm þetta er byrjunin á sögunni af því að ég var alveg spennt að hugsa í morgun hvað ég þyrfti að ræða þetta og ef ég væri með blog þá væri það staðurinn að ræða svona pirringspakka, þannig að ég bloggaði bara um þetta. Svona sorglegt er líf mitt!! Í hvert skifti sem að ég les blog vina minna þá hugsa ég oft, jám ég gæti nú alveg verið svona fyndinn eða þá hugsa ég stundum þegar að fólk sem er með blog, lendi bara í miklu fleiri hlutum en ég og hafi þess vegna frá miklu meira að segja. Ég lendi reyndar stundum í einhverju asnalegu/fyndnu/sorglegu eða bara engu sem er kanski gaman að segja frá eða að lesa um, tja veit ekki.. En líka af því að hólkur 2 hætti bara að blogga á hólkasíðuna þá vil ég hafa mína eigin, það er líka mikið betra bara segir mamma mín.
