Gamla bara komin í gírinn, bomborombomomb!! Gamla settið er tjaldað hérna í sófanum hjá mér og allir bara að missa sig í stemmara yfir Hit med sangen, og ég er nátturlega að brillera. Gamla keppnisskapið að koma fram. Erum búin að eiga mjög næs dag niður í bæ, úti í bilka, úti að borða lunch og svo dassaði maður í bringur í kvöldmatinn. EN í gær eldaði ég barasta alveg einn þann besta rétt sem að ég hef gert, Risotto með humar og tígrisrækjum, NAMMI. Alveg þó ég segi sjálf frá. Spurning hvort að ég láti uppskrift fljóta, hmmmm, anyone!!
fredag, september 14, 2007
torsdag, september 13, 2007
Gamla búin að vera í smá bloggpásu sem nú er á enda. Lífið er komið í fastar skorður og það er svo gott að hafa það þannig, maður þrífst bara mikið betur. Önnin í skólanum lítur mjög vel út og ég er bara spennt og auðvitað afar jákvæð að takast á við ný verkefni með nýju grúppunni minni.. Svo er nátturlega prinsessan byrjuð í skólanum og það er barasta gaman. Hún sagði um fyrsta skóladaginn að "þetta væri besti dagur lífs hennar", SNILLINGUR, bara að þetta haldi áfram! Mamma og Pabbi koma á eftir, sem er alveg ótrúlega gott, það er svo gaman að fá þau og þegar að maður hittist á þennann hátt þá er maður virkilega saman! Fór annars í bíó í gær með 2 nágrannakonum mínum, skelltum okkur reyndar fyrst á kaffihús og svo í bíó. Sáum myndina knocket up, sem við héldum að væri kanski svona alger kellingamynd. En það voru nú eiginlega bara gelgjur, 2 pör og við í bíó. Ég hló reyndar ógeðslega mikið, gaurarnir í myndinni voru annað hvort stoned eða á sveppatrippi, he he he. Alla vega mæli ég með þessari mynd á dvd í góðri þynnku þegar að manni vantar að hlægja, vera heimskur og hugsa ekkert.
