Dóttir mín og vinkonur hennar eru í töluðum orðum að reyna að sofna eftir að vera búnar að skottast saman síðan að ég sótti þær í skólann í dag. Það er búið að vera með dansshow og alles inni í herbergi og ég er eiginlega búin að taka þátt í þessu öllu saman - já einhvern tímann heyrði ég einhvern viskann mann segja að maður megi ekki gleyma barninu í sjálfum sér og nei ég er víst alls ekki að því.
Svo fórum við með vasaljós uppí Golfparken að skoða stjörnurnar og elta drauga en fundum enga drauga, þeim var ábyggilega svo kallt að þeir voru búnir að fela sig einhversstaðar. Þær öskruðu nátturlega alltaf svo mikið þegar að ég var að stússa eitthvað að það var mikið að barnaverndarnefnd kom ekki og greip til málanna. Heim var haldið og ég var búin að lofa sögu þegar væri komið í háttinn - ég skáldaði svo rosalega tröllkonusögu og álfasögu að nú er vinkona hennar Rakelar skíthrædd inni í herbergi og á eftir að koma í sjokki heim á morgun og hvað eiga foreldrarnir eftir að halda - sjáið þið fyrir ykkur þegar stúlkan er að segja pabba sínum (sem er nb. soldið þurr á kantinn) að mamma hennar Rakel hafi verið að segja sögur af tröllkonu á íslandi sem að var að reyna að ná í mat fyrir börnin sín í hellinum og náði ekki heim og varð að steini....
Rakel samt svo geðveikt að stand by me alltaf og trúir á þetta af öllu sínu hjarta og sagði þeim líka sögurnar af Grýlu og leppalúða og öllum bræðrunum og kom með einn punkt sem ég reyndar á eftir að fá staðfestann. Sagði að Guðný vinkona mömmu hefði einu sinni verið svo óþekk að Grýla hefði tekið hana með sér heim í hellirinn en svo hefði hún reyndar fengið að fara til baka, þvílík heppni!!! Pæla að barnið muni enn eftir þessu.. Guðný ég bara spyr - hvernig var í hellinum hjá henni Grýlu??
En annað sem er vert að setja á veraldarvefinn og það er að ég náði prófinu mínu í gær - alveg rosalega glöð núna

2 kommentarer:
Til lukku með prófið skvísa! Já, það væri forvitnilegt að vita hvernig var í hellinum, Guðný... hehehehe ;o)
Kv. día
Ja hérna....sko ég er í fyrsta lagi með alsæmer á háu stigi...ehhehehh.....og man því ekkert eftir að hafa hrætt aumingja barnið með þessu...usss.
En verð samt að viðurkenna að ég og Grýla áttum bara góðan tíma saman, kom mér á óvart hvað hún var góð...sögurnar eru ekki alltaf sannar greinilega, en þar sem ég saknaði svo foreldra minna og vildi alls ekki missa af jólagjöfunum þarna um árið, leifði Grýla mér að fara heim, en með því skilyrði að ég yrði ALLTAF stilt og þæg stúlka, og það hef ég sko aldeilis verið, Svanborg veit það sko manna best....hehehehehh.
Send en kommentar
Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]
<< Start