torsdag, juni 07, 2007

Sunneva skvísa mætt til okkar... 27 gráður í skugga hérna á pallinum. Fórum frænkurnar og keyptum þessa snilldarsundlaug og slöngu til að fylla í, var nú eitthvað smá vesen með að koma slöngunni á blöndunartækið, en það reddaðist því ég blikkaði einhvern plummer sem að var hérna að vesenast í einhverju í gosbruninum, klikkar ekki gamla. Nú er bara að vinda sér í lærdóminn.. í lauginni, nákvæmlega!!!

onsdag, juni 06, 2007

Fuglasöngur dirrindý.... Ég er persónulega ekkert að deyja úr gleði þegar að fuglasöngurinn glimur inn um gluggann minn kl 5 á morgnana/nóttunni. Mér finnst þeir bara ógeðslega pirrandi og sérstaklega einn, minnir soldið á spóa - og ég veit að enginn myndi nenna að vakna með spóa gargandi í eyrunum á sér á hverjum morgni. Veit ekki hvaða renæsance rómantík þetta er!! Þetta er allavega ekkert fyrir mig, þetta heyrir til í sumabústaðnum og á íslandi af því að þar syngja fuglarnir einfaldlega bara fallegar.... nema kanski helvítis kríurnar