tirsdag, december 02, 2008

Mjög oft er ég þessi týpa sem er ógeðslega utan við mig - sumir kalla þetta prófessor gen aðrir kalla þetta bara ljóskutakta... Ætla að deila með ykkur nokkrum atriðum sem hafa gerst fyrir mig undanfarið.

1. Var í vinnunni í gær og ætlaði að poppa fyrir unglingana og það er nátturlega ekkert mál fyrir svona týpu eins og mig. Nema ég set poppið í örbylgjuna og stilli svo á rúmar 3 mín - og stend og bíð, bíð og svo skil ég ekkert gerist ekkert!! Enda með að ná í samstarfsmann minn og spyr afhverju gerist ekkert - það kviknar ábyggilega í poppinu bráðum segi ég, þá horfir maðurinn bara grafalvarlega á mig og segir mér að það sé ábyggilega betra að kveikja á örbylgjunni fyrst.. Dísus Svanborg það þarf nú enga háskólagráðu í það...

2. Var að versla um daginn - kom heim og ætlaði að elda, byrja á að setja kartöflurnar í ofninn - en nei ég gleymdi pokanum með kartöflunum í búðinni. Hvernig er það hægt...

3. Við Rakel vorum að bíða eftir strætó um daginn, svo kemur einhver strætó, við sko að bíða eftir nr.2 og ég stend nátturlega bara alveg tóm og horfi úti í loftið. Svo fer fullt af fólki í strætó og svo segir Rakel þegar hann keyrir í burtu, mamma afhverju fórum við ekki með tvistinum. Þá lýt ég upp og sé að þetta var tvisturinn sem var að keyra í burtu - freðin gella...

Jæja gaman að þessu

5 kommentarer:

Anonymous Anonym sagde ...

Ertu orðin alveg kúkú...við þurfum að ræða þetta þegar þú kemur. Vonandi hrekkuru í gang þá. Var ég búin að nefna það hvað ég er ógeðslega spennt að fá ykkur heim. Kveðjos amiga Begga

2. december 2008 kl. 18.04  
Anonymous Anonym sagde ...

ég er spá í hvort þú hafir ekki bara verið freðin í alvörunni...

annars þá er fínt að vera dáldið utan við sig.. þá lendir maður í svona skemmtilegum atburðum.

knúsar
sara hrund

3. december 2008 kl. 12.21  
Anonymous Anonym sagde ...

Fann enga svona gestabók hér á síðunni þinni þannig að ég kassta bara kveðju hér ;)
Til lukku með stóru prinsessuna þín.
Kossar og knús.
Kveðja Guðný.

9. december 2008 kl. 15.13  
Anonymous Anonym sagde ...

Þú ert yndisleg einsog þú ert!

kv,

Eydís.

15. december 2008 kl. 14.53  
Anonymous Anonym sagde ...

"Vertu velkomin heim, Yfir hafið og geim"! hlökkm óendanlega til að sjá ykkur sætu mæðgur. Begga

21. december 2008 kl. 08.09  

Send en kommentar

Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]

<< Start