onsdag, maj 02, 2007

Var að versla mér eitt stykki grill áðan í úper súper Aldi market, já þeir klikka ekki á lágu prísunum. Enda þýsk "gæðakeðja" þar á ferð, er ekki þýskaland þekkt fyrir þessi massa gæði eins og tildæmi bmw, audi, aeg, miele og siemens og áfram mætti lengi telja. Ég held samt að þetta sé svona massa herferð hjá þjóðverjunum um að láta alla hina halda að gæði er það fyrsta sem maður hugsar um þegar að maður sér eitthvað frá germaníu.. Svona er samt ekki litið á þýsku súpermarkaðina í dk, þar versla aðallega rónarnir og fátæka fólkið sem lifir langt undir fátæktarmörkum(meðal annars námsmenn). Verst finnst mér þó sýstemið í þessum búðum, sko þú setur matinn upp á færibandið og svo rúllast maturinn niður fyrstu 20 metranana og þar situr kassadaman, eftir að hún er búin að skanna matinn inn þá þarft þú að vera í viðbragðsstöðu til að grípa matinn og pakka honum niður, af því að það er ekkert pláss eftir kassann! Svo ferðu á annað borð með matinn út um allt og pakkar honum þar niður. Niðurstaðan er sú að ég hef hreinlega ekki taugar í að versla þarna, annað en grill af því að ég er ekki þessi úber fljóta týpa. Hvað er málið með þetta!! Svo eru þessir markaðir ALdi og Liddl svo hrikalega ódýrir með sumt að ég held að það sé eitthvað suspicius í matnum hjá þeim, það er kanski þess vegna sem að þjóðverjarnir eru ekki myndalegri?

4 kommentarer:

Anonymous Anonym sagde ...

ég skil heldur ekki dani..þegar þeir fara að versla þá kaupa þeir ekki poka..heldur setja matinn aftur oní körfuna og þaðan í skottið á bílnum og svo milljón ferðir með það inn í hús..FRAM OG TILBAKA.. ekki nema þeir hafið tímt að fjárfesta í körfu sem þeir kayra með frá bílnum og inn í húsið sitt...hmmm...Ég ætti kannksi frekar að hringja í þig bara...þetta var svo langt...:)

2. maj 2007 kl. 14.17  
Anonymous Anonym sagde ...

Heheh....já djö...pældi ég oft í því þegar ég bjó úti í liðinu sem raðaði öllu beint í bílinn...shitt..hvað er málið. En það má kannski milli vera, ég keypti mér nánast aldrei poka úti en núna er fljótandi inni í skáp.. maður pælir ekki eins í þessu hérna heima, skil ekki afhverju ???

2. maj 2007 kl. 16.50  
Anonymous Anonym sagde ...

já...það er eitthvað dúbíus við þessar keðjur..ætli það sé óhætt að versla þar?...byrjar bara ekki þriðja höfuðið að vaxa á bakinu á manni, talandi þýsku?! Ég gæti ekki afborið það....versla einhverstaðar dýrara!

knúsar í sólina, úr þokunni í eyjum...

Skvís-ur.

3. maj 2007 kl. 10.18  
Anonymous Anonym sagde ...

Hahaha... fyrstu 20 metrana! Snilld! Ég held ég hafi einu sinni komið inn í Aldi hér í Áló.. og það eina skipti var bara alveg nóg;) Nei, ég skil heldur ekki þetta með að setja vörurnar aftur í körfuna, út í bíl osv. Talandi um tímaeyðslu og margverknað.. til að spara alveg 2 og 50! hahhaha.. Danir.. you´ve gotta love them!:) (segir sú "danska";) )

6. maj 2007 kl. 16.42  

Send en kommentar

Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]

<< Start