lørdag, oktober 11, 2008

Já til að gera langa sögu stutta...þá ligg ég hér í sófanum í hólki frá nára niður á ökkla eftir að hafa flogið hressilega af reiðhjólafák mínum. Braut sem sagt upp úr hnéskélinni og get ég sagt ykkur sem ekki hafa prófað þetta að þetta er ekki þess virði - myndi sleppa þessu.
Þetta sest nú reyndar mest á geðheilsu mína þar sem að ég get ekkert gert - dísus hvað ég er pirruð! Ég á að vera í þessari djö.... spelku í 4 - 6 vikur og á hækjum. Mjög hressandi að beyglast um allt á hækjum...
Þetta er samt mjög gott mál allt saman þar sem ég er að fara að flytja eftir 3 vikur og þarf eðlilega að pakka og flytja allt draslið mitt og nátturlega þrífa og ganga frá þessari íbúð, fyrir utan það þarf ég nátturlega að fylgja Rakel í skólann og fótbolta og sjálf að fara í skólann, versla og vinna. Verð sem sagt bara að líta á þetta sem svona challenge í mínum hversdagsleika. Á erfitt með að viðurkenna það ...en nú væri kanski pínu gott að eiga kall!
Á mig aumann...spurning um að henda inn mynd einhvern daginn...

onsdag, oktober 08, 2008

Kanski var það rangt af mér í gær að tala bara um gelgustæla og rugl, þegar að þessi krísa er á Íslandi - eða kanski veit ég bara ekki nógu mikið um þetta til þess að vera að tjá mig um þetta. En nú get ég ekki staðið á mér lengur!!
Algerlega privat og persónlega er þessi kreppa kanski ekki að snerta mín einkafjármál þar sem að ég hvorki á né skulda krónu á Íslandi en auðvitað snertir þetta marga sem að mér standa. Mér finnst þetta ótrúlega sorglegt allt saman og skil vel að fólk liggur andvaka allar nætur með áhyggjur af hvernig það á að ná endum saman.
En hvernig gerist þetta... Er það vegna þess að við þjóðin urðum alltof gráðug í uppsiglingunni og reiknuðum ekki dæmið til enda eða er það vegna einhverra mjög spilltra manna í efnahagslífinu? Kanski er það blanda af þessu öllu saman og auðvitað standa allir saman. Það er nefnilega það sérstaka við Íslendinga - við stöndum alltaf saman. Danir skilja þetta ekki - hugsa bara um síns eigins hag og er í rauninni alveg sama um hina. Spyrja mig bara hvort ég sé ekki örugglega með danskann SU og þá sé bara allt í góðu hjá mér, ég hafi nátturlega engar áhyggjur eða hug til þessarar kreppu.
Kanski gerði ég mér fyrst grein fyrir þessu í dag þegar að íslenskur námsmaður hér í borg hvorki gat tekið út pening né millifært á milli landa svo manneskjan stóð með 30dkr á sér- dísus!!
Maður kemst nefnilega ekki langt í dk fyrir 30 - eða þú kemst 2 í strætó...
Danskir fjölmiðlar eru að fjalla mikið um þetta, en aðalfréttin í þessum mínutum er einmitt sú að forsætisráðherra íslands sé kominn með lífverði-og hvað með það?
En hver vill hjálpa litla íslandi - ef við getum það ekki sjálf....

1. Rússland (það liggur eitthvað skítt á bakvið það - rússneska mafían vill fá aðsetur á eyjunni með bestu staðsetningunni gagnvart USA)

2. Noregur (Er það ekki bara allt í gúddý ? Við verðum öll norskir olíukongar og við getum deilt kvótanum á milli okkar - getum hlegið af öllum peningunum sem við eyddum í smugudeiluna)

3. Mærsk Moeller (ríkasti gæjinn í dk - er bara ekki til í að vera bauni - er stolt af að vera eitthvað annað)

Vá hvað ég hef lítið um þetta að segja samt

En Samhugur í verki og hugur minn er hjá íslandi

tirsdag, oktober 07, 2008

Sumir dagar eru góðir aðrir misgóðir og hinir bara leiðinlegir.. Veit ekki hvar ég að setja daginn í dag en þetta er búinn að vera svona "intet sigende" dagur - grár og leiðinlegur, og þess vegna ætla ég einmitt að blogga...

Málið er að það gerðist nokkur mjög fyndin atvik hérna um helgina sem að mér fyndist ótrúlega sveitt að deila með ykkur en þar sem að þú...pabbi og þú...mamma eruð að lesa þetta þá vil ég nú ennþá vera sú fyrirmyndar stúlka sem þið alltaf hafið álitið mig vera, he he. Ég átti allaveg mjög fína helgi sem fór nú smá í djamm og spil og netta þynnku - og að sjálfsögðu var barnið á meðan í góðum og öruggum höndum föður síns.

Framundan eru svo flutningar á Kollegi dauðans þar sem að maður hefur átt ófáar skemmtilegar stundir með kvalítets manneskjum - við mæðgur erum semsagt komnar með nýja íbúð þar frá 1 nóv og okkur hlakkar bara mjög mikið til að koma okkur fyrir í lítilli og kósý íbúð. Efst á óskalistanum núna eru nátturlega hjálparhellur í flutningana en það væri ekki verra ef að nokkrir fjallmyndarlegir menn...skemmtilegir og sterkir væru til í að aðstoða stúlkuna með varninginn á milli húsa. Er semsagt búin að leygja mér lítinn flutningabíl sem að verður súrt notaður þennann skemmtilega dag, tek það fram að það verður nóg af köldum bjór á boðstolnum.. - það er semsagt núna sem á að bjóða sig fram :)

Svo er nú vinnan mín í félagsmiðstöðinni að gera gott mót - ég er bara svo mikil gelgja sjálf að þarna fæ ég alveg leyst um mínar gelgjuþarfir. Hormónarnir eru að bilast í unga fólkinu og þau fá meira ...já en ég - sorglegt það! Þau eru alltaf að byrja saman og hætta saman og þetta er allt svo einfalt, svo situr maður með þeim í sófanum að horfa á tv og allt í einu er liðið bara í hörku sleik - engin situationsfornæmmelse... Það er aldrei tekið tillit til þessarar 30 piparjónku... En krakkarnir trúa því ekki ég sé 30 - halda að ég sé bara svona 23 af því ég klæði mig eins og þeir sem eru 23, segja þau. Hvernig klæðir fólk sig sem er 23? Svo finnst þeim geðveikt kúl að eg heiti Svanborg - hef aldrei áður í dk heyrt að fólki finnist það kúl. Svo þarna á ég bara heima :)

Spurning að fara aftur í gaggó?