fredag, maj 11, 2007

Hér er linkur á stuttmyndina sem að Rakel var að leika í
http://www.youtube.com/watch?v=MUsn7GUxkcA
Ræ ræ ræ ræ, þá er barasta helgi framundan og það þýðir lærdómur. En það þýðir nú ekkert að vera að velta sér upp úr því, bara að taka þessu með jákvæðum hug! Þess vegna er ekki frá mörgu að segja annað en lærdómi og þess háttar málum. Ég var reyndar með í daginn i fræðsluþætti fyrir kommúnuna hér, um byrjun á skólagöngu barna og þessi þáttur var frumsýndur í skólanum hennar Rakelar á miðvikudaginn var og þess vegna er ég orðin MOVIE STAR.. Allir klöppuðu fyrir mér og kennararnir taka að ofan fyrir mér núna, þar sem að ég tók skynsemisræðuna á þetta. Talaði um mikilvægi þess að blanda saman kúlturum og hversu mikið tolerance börnin öðlast á þessu. Þekkingu á fjölbreyttum kúltúrum og trúarbragða hvers annars, mikilvægi samvinnu foreldranna og hvernig allir þessir þættir geta skapað trygga og góða skólabyrjun fyrir börnin. Ég talaði nátturlega bara frá hjartanu og nú hefur kommúnan beðið mig um að taka þátt í öðru projekti sem viðkemur skólabörnum, skemmtilegt að fá svona faglega staðfestingu á foreldrahlutverkinu. Fyrir utan að ég er orðin moviestar þá er verkefnið í grúppunni eins og ég sagði ykkur á blossandi uppleið og verður það kynnt fyrir annarri kommunu á miðvikudaginn næsta, og það er nátturlega bara max spennó. Ég sá að Elva var að óska eftir fullri uppskrift og skal ég henda því hér inn um helgina. Annars bara ...verið þið hress ekkert stress og bmx

tirsdag, maj 08, 2007

Skemmtilegt stundum að opna meil boksið, það eru ýmist meilar um tippalengjingar, hárlengingar, fitusog(HVER KJAFTAÐI) og nýjast nýtt frá einhverjum Ragga um góðan link á kristinfræðikennslu fyrir börn, hver er Raggi og hvenar bað ég hann um að senda mér link á það, svar óskast? Um daginn fékk líka meil frá Sigga (veit heldur ekki hver það er) sem keypti netáskrift dagsins af BT(dagblað) og leyniorðið væri svanborg, hefur fólk virkilega ekkert annað að gera, jeremíus!! Já en annars nýjasta nýtt, Verkefnið mitt og grúppunnar er greinilega bara á blússandi uppleið, já svona er þetta með verkfræðinga framtíðarinnar, maður er barasta búinn að þróa nýja teoriíu og liðið að missa sig yfir þessu eða kanski bara þessir 2 vejleder sem við erum með, spurning!! EN svo var ég búin í skólanum í dag, skutlaðist að ná í prinsessuna, búin að útrétta aðeins og langaði bara heim, en nei þá hafði ég gleymt helv.... lyklinum í skólanum og þar var hann læstur inni í grúppuherbergi. Enginn vildi fá okkur í heimsókn af þeim sem við hringdum í, hljótum að vera massa leiðinlegar þannig að við mæðgur héngum úti í bíl í ca 1.5 tíma að bíða eftir nilla greyinu. Það er kanski hægt að kalla þetta fyrir kvalití móment, he he. Já til að bjarga geðheilsunni fór frúin í eldhúsið og átti þar góða stund með sjálfri sér, dassaði fram falaffel, hummus og bulgur salat, Rakel elskar bulgur salat og hér kemur uppskrift af bulgur salati dagsins, sko ég nota aldrei nein mælitæki. Hér á heimilinu er allt dass, en ég skal reyna!!

Bulgursalat
2 dl. Bulgur, soðið eftir leiðbeiningum á pakka, síðan kælt
1/3 gúrka, skorin í litla teninga
1/2 paprika, skorin í litla teninga
1/2 búnt steinselja, fínt hakkað
1 lúka ruccola salat, fínt hakkað
sléttfull panna furuhnetur, léttsteiktar
gott dass af hökkuðum sólþurkuðum tómötum
gott dass af ferskum rifnum parmesanosti

Hrærist allt obboslega vel saman, til að flýta fyrir kælingu Bulgurs þá hendi ég bara pottinum út með gossinu í, þá er þetta fljótt að kælast..

søndag, maj 06, 2007

Jæja nú er bænadagshelgin brátt á enda og ég alls ekki búin að standa mig í bænunum. Við byrjuðum þessa frábæru helgi á að bjóða nokkrum sálum í smá grillveislu og eftir það var bara nett partý stemming með snilldarfólki. Mannskapurinn endaði síðar niður í bæ eitthvað fram eftir nóttu og það bar víst á því daginn eftir. Annars er það skemmtilega við að vera í skóla, það er að maður þarf alltaf að vera að læra, maður er ekkert með frí á svona þjóðlegum frídegi, ég meina þegar að allir hinir höfðu tíma til að vera að fara með bænirnar þá var ég bara að læra, SVINDL.. laugardagurinn fór líka í lærdóm og já það mesta af sunnudeginum líka. Nema hvað að krónprinssessan kom heim frá Toscana með risastóran parmesan ost handa mömmu sinni, við mæðgur erum nefnilega sjúkar í parmesan ost. Svo skelltum við okkur aðeins út í Lundby Krat en Rakel var að leika zombee í bíómynd þar (myndir á hennar síðu)Við enduðum daginn á að baka pulsuhorn til að fara með í nesti í skólann í vikunni, en svo langaði okkur bara svo í þau að við borðuðum þau í kvöldmat.NAMMI