Ég þoli ekki fólk sem er að hjóla massa hratt á morgnanna og þetta fólk er mest fyrir öllum á hjólastígnum af því að það heldur að það sé að taka þátt í ólympíuleikunum um hver kemur fyrstur í skólann/vinnuna. Jamm þetta er byrjunin á sögunni af því að ég var alveg spennt að hugsa í morgun hvað ég þyrfti að ræða þetta og ef ég væri með blog þá væri það staðurinn að ræða svona pirringspakka, þannig að ég bloggaði bara um þetta. Svona sorglegt er líf mitt!! Í hvert skifti sem að ég les blog vina minna þá hugsa ég oft, jám ég gæti nú alveg verið svona fyndinn eða þá hugsa ég stundum þegar að fólk sem er með blog, lendi bara í miklu fleiri hlutum en ég og hafi þess vegna frá miklu meira að segja. Ég lendi reyndar stundum í einhverju asnalegu/fyndnu/sorglegu eða bara engu sem er kanski gaman að segja frá eða að lesa um, tja veit ekki.. En líka af því að hólkur 2 hætti bara að blogga á hólkasíðuna þá vil ég hafa mína eigin, það er líka mikið betra bara segir mamma mín.

1 kommentarer:
ég hætti kannski ekki alveg á síðunni...það bara gekk svo ógeðslega illa að ég skammaðist mín fyrir það minnsta að opna hana...Hólkur 2
Send en kommentar
Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]
<< Start