onsdag, oktober 08, 2008

Kanski var það rangt af mér í gær að tala bara um gelgustæla og rugl, þegar að þessi krísa er á Íslandi - eða kanski veit ég bara ekki nógu mikið um þetta til þess að vera að tjá mig um þetta. En nú get ég ekki staðið á mér lengur!!
Algerlega privat og persónlega er þessi kreppa kanski ekki að snerta mín einkafjármál þar sem að ég hvorki á né skulda krónu á Íslandi en auðvitað snertir þetta marga sem að mér standa. Mér finnst þetta ótrúlega sorglegt allt saman og skil vel að fólk liggur andvaka allar nætur með áhyggjur af hvernig það á að ná endum saman.
En hvernig gerist þetta... Er það vegna þess að við þjóðin urðum alltof gráðug í uppsiglingunni og reiknuðum ekki dæmið til enda eða er það vegna einhverra mjög spilltra manna í efnahagslífinu? Kanski er það blanda af þessu öllu saman og auðvitað standa allir saman. Það er nefnilega það sérstaka við Íslendinga - við stöndum alltaf saman. Danir skilja þetta ekki - hugsa bara um síns eigins hag og er í rauninni alveg sama um hina. Spyrja mig bara hvort ég sé ekki örugglega með danskann SU og þá sé bara allt í góðu hjá mér, ég hafi nátturlega engar áhyggjur eða hug til þessarar kreppu.
Kanski gerði ég mér fyrst grein fyrir þessu í dag þegar að íslenskur námsmaður hér í borg hvorki gat tekið út pening né millifært á milli landa svo manneskjan stóð með 30dkr á sér- dísus!!
Maður kemst nefnilega ekki langt í dk fyrir 30 - eða þú kemst 2 í strætó...
Danskir fjölmiðlar eru að fjalla mikið um þetta, en aðalfréttin í þessum mínutum er einmitt sú að forsætisráðherra íslands sé kominn með lífverði-og hvað með það?
En hver vill hjálpa litla íslandi - ef við getum það ekki sjálf....

1. Rússland (það liggur eitthvað skítt á bakvið það - rússneska mafían vill fá aðsetur á eyjunni með bestu staðsetningunni gagnvart USA)

2. Noregur (Er það ekki bara allt í gúddý ? Við verðum öll norskir olíukongar og við getum deilt kvótanum á milli okkar - getum hlegið af öllum peningunum sem við eyddum í smugudeiluna)

3. Mærsk Moeller (ríkasti gæjinn í dk - er bara ekki til í að vera bauni - er stolt af að vera eitthvað annað)

Vá hvað ég hef lítið um þetta að segja samt

En Samhugur í verki og hugur minn er hjá íslandi

2 kommentarer:

Blogger Geraldo Maia sagde ...

Hello Svanborg,
Du har en meget smuk blog, jeg kan lide det.
Hilsener fra Brasilien:
Geraldo

8. oktober 2008 kl. 19.07  
Anonymous Anonym sagde ...

Þetta er fáránleg aðstæða sem við erum í og það eru allir smeykir við Rússana nema Geir sem sleikjir skóna hans Pútíns!

Leggjumst undir Danina eða Norsarana aftur! Þeir passa okkur nokk vel og lengi!

Ég er stolt af því að vera Dani! !

Baráttukveðjur frá Íslandi þar sem skyrdósin hækkaði um 50kr í gær og Havrafrasar kosta 735kr pakkinn í Krónunni!

Skvís.

9. oktober 2008 kl. 11.10  

Send en kommentar

Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]

<< Start