tirsdag, juni 12, 2007

Á mínu heimili er kvöldmáltíðin alltaf viss kvalití móment, þar hittumst við fjölskyldan og ræðum málum, yfirleitt um hvað hefur gerst yfir daginn og barasta daginn og veginn.. Í kvöld þá var þetta alveg einstaklega fyndið allt saman en hún dóttir mín getur verið svo einlæg og já fyndin. Við vorum eitthvað að tala um USA og þegar að ég var þar,
samtal:
Rakel : Mamma varstu þá kærastar með pabba mínum
Svanborg: Nei það var áður en ég flutti til Danmerkur
Rakel: áttiru einhvern kærasta þá
Svanborg: Já hann hét Bjössi (og heitir líklegast enn)
Rakel: Já hann Bjössi á mjólkurbílnum...

Þá byrjar hún að syngja það lag, rosalega ánægð með að mútterin sé búin að vera með Bjössa á mjólkurbílnum og ég og Sunneva grenjum úr hlátri (sko að vera með gelgju á heimilinu er snilld, ég er svo mikil gelgja með henni, ég er alltaf svo meðvirk). Svo spyr hún....

Rakel: Mamma varstu ekki líka kærester með Sveppi

Þessu gat ég ekki svarað því ég gelgjan eipaði úr hlátri með hinni gelgjunni, þá segir steikin..

Rakel: Niels han heder altså champingnon på dansk!!!

Þetta er nátturlega had tú bí þer móment en ákvað að deila þessu með ykkur og ég hef aldrei verið kennd við svepp.

søndag, juni 10, 2007

Sunnudagur til sælu.... já það er varla annað að segja héðan úr steikinni. Fórum í Faarup sommerland í gær og áttum ansi huggó dag, fór eitthvað lítið fyrir lærdómi enda er bara ekki hægt að læra í þessum hita. Það passar ekkert saman að liggja og lesa þurrt og leiðinlegt efni þegar að það er massa heitt úti og allir í lauginni, he he. Vorum að enda við að gúffa í okkur smá brunch svo nú er ég sest við tölvuna,aðeins að blogga smá fyrir lærdóminn. Unglingurinn er hjá vinkonu sinni og litla skvísan er að fara á ströndina með grannanum, tjáaa