lørdag, august 30, 2008

Fórum á sumarhátíð í skólanum í gær í skólanum hennar Rakelar - þetta er svona árlegur viðburður þar sem krakkarnir geta selt dótið sitt og kanski sannkað að sér nýju og nothæfu dóti. Gamla var nátturlega með bás og vildi selja einstaka leikfang á spot prís - daman er greinilega ekki með nógu mikið viðskiptavit eins og móðirinn sem selur allt eins og heitar lummur á Trendsales.

Básinn með öllu dótinu
sem gamla vildi selja...
























Hérna er hún að versla







Spenningurinn leynir sér
ekki þegar að fyrsti
kaupandinn kom















Rakel og Ida











Þetta tók svo á að hún varð að liggja með sængina daginn eftir í sófanum og leika með dótið

søndag, august 24, 2008

Vitið þið hvað...nei þið vitið það nátturlega ekki og þess vegna ætla ég að segja ykkur það. Keypti mér myndavél í gær :) Seldi espresso vélina mína og keypti mér myndavél í staðinn. Lék mér nú bara smá með hana í gær - en það var kanski ekki svo mikið að mynda annað en ég og mín ljótu blóm! Hlakka barasta til að geta farið að sýna ykkur framhaldið....