lørdag, oktober 11, 2008

Já til að gera langa sögu stutta...þá ligg ég hér í sófanum í hólki frá nára niður á ökkla eftir að hafa flogið hressilega af reiðhjólafák mínum. Braut sem sagt upp úr hnéskélinni og get ég sagt ykkur sem ekki hafa prófað þetta að þetta er ekki þess virði - myndi sleppa þessu.
Þetta sest nú reyndar mest á geðheilsu mína þar sem að ég get ekkert gert - dísus hvað ég er pirruð! Ég á að vera í þessari djö.... spelku í 4 - 6 vikur og á hækjum. Mjög hressandi að beyglast um allt á hækjum...
Þetta er samt mjög gott mál allt saman þar sem ég er að fara að flytja eftir 3 vikur og þarf eðlilega að pakka og flytja allt draslið mitt og nátturlega þrífa og ganga frá þessari íbúð, fyrir utan það þarf ég nátturlega að fylgja Rakel í skólann og fótbolta og sjálf að fara í skólann, versla og vinna. Verð sem sagt bara að líta á þetta sem svona challenge í mínum hversdagsleika. Á erfitt með að viðurkenna það ...en nú væri kanski pínu gott að eiga kall!
Á mig aumann...spurning um að henda inn mynd einhvern daginn...

2 kommentarer:

Anonymous Anonym sagde ...

Baráttukveðjur...Hin skelin er á leiðini..Vonandi passar hún ...love Begga

12. oktober 2008 kl. 10.03  
Blogger Laufey sagde ...

Jæks... þetta hefur verið vont. Lætur mig vita ef ég get eitthvað hjálpað.

kv. Laufey

13. oktober 2008 kl. 16.31  

Send en kommentar

Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]

<< Start