onsdag, november 19, 2008

Afhverju vill maður blogga þegar að maður hefur ekki tíma til þess - eða á ekki að vera eyða tíma í það, kanski vegna þess að ég skil ekkert í þessari tölfræði og hreinlega bara nenni ekki að læra hana. Er búin að eiga mjög pakkaða daga undanfarið og á held ég bara eftir að eiga það þangað til ég kemst á klakann góða - hlakka svo til að hitta ykkur.

Erum fluttar í þessa líka fínu litlu sætu íbúð og erum bara búnar að koma okkur nokkuð vel fyrir - er reyndar enn að venjast skólplögnunum í byggingunni því ég get nánast fylgst með klósettferðum þeirra sem búa fyrir ofan mig en þetta er allt að venjast - maður lætur sig nú hafa ýmislegt fyrir þennann pening sem maður er að spara;)

Þess fyrir utan erum við bara að sinna námi, vinnu, fótbolta og kór og alltaf nóg að gera hjá okkur - ég er desuden laus úr græjunni og er núna bara hálf kalt á fætinum, verndarinn mikli er farinn.

Framundan er annarst bara próf á morgun - náttfatapartý hjá Rakel á föstudaginn (ég er alltaf þessi hressa mamma sem býður öllum með) - sushiboð með gömlum grönnum á sunnudaginn og svo bara hellings projektvinna...

Hlakka óendanlega til að koma til íslands um jólin - ég er með íslandssýki eins og er - bara 2,5 ár eftir svo kem ég og ekki orð um það meir...

2 kommentarer:

Blogger AnnaKatrin sagde ...

Þú birtist mér í draumi í fyrrinótt, ég man ekki meira en þú varst þar, ábyggilega eitthvað gamalt, klassískt og gott. Ég sendi ykkur góða strauma í nýju íbúðina, til hamingju.
ak

21. november 2008 kl. 16.58  
Anonymous Anonym sagde ...

já ef þú verður ekki komin eftir 2,5 ár þá kem ég persónulega og pakka niður fyrir þig og Rakel og sæki ykkur. Og ekki orð um ÞAÐ meir!

BEGGA - Alveg harðákveðin

22. november 2008 kl. 19.46  

Send en kommentar

Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]

<< Start