Gamla búin að vera í smá bloggpásu sem nú er á enda. Lífið er komið í fastar skorður og það er svo gott að hafa það þannig, maður þrífst bara mikið betur. Önnin í skólanum lítur mjög vel út og ég er bara spennt og auðvitað afar jákvæð að takast á við ný verkefni með nýju grúppunni minni.. Svo er nátturlega prinsessan byrjuð í skólanum og það er barasta gaman. Hún sagði um fyrsta skóladaginn að "þetta væri besti dagur lífs hennar", SNILLINGUR, bara að þetta haldi áfram! Mamma og Pabbi koma á eftir, sem er alveg ótrúlega gott, það er svo gaman að fá þau og þegar að maður hittist á þennann hátt þá er maður virkilega saman! Fór annars í bíó í gær með 2 nágrannakonum mínum, skelltum okkur reyndar fyrst á kaffihús og svo í bíó. Sáum myndina knocket up, sem við héldum að væri kanski svona alger kellingamynd. En það voru nú eiginlega bara gelgjur, 2 pör og við í bíó. Ég hló reyndar ógeðslega mikið, gaurarnir í myndinni voru annað hvort stoned eða á sveppatrippi, he he he. Alla vega mæli ég með þessari mynd á dvd í góðri þynnku þegar að manni vantar að hlægja, vera heimskur og hugsa ekkert.

1 kommentarer:
...þarf nú ekki þynnku til að vera heimsk og hugsa ekkert....thíthí..
Gott að sjá þig í þessum heimi aftur, hef saknað þín.
Skvís-ur.
Send en kommentar
Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]
<< Start