onsdag, juni 06, 2007

Fuglasöngur dirrindý.... Ég er persónulega ekkert að deyja úr gleði þegar að fuglasöngurinn glimur inn um gluggann minn kl 5 á morgnana/nóttunni. Mér finnst þeir bara ógeðslega pirrandi og sérstaklega einn, minnir soldið á spóa - og ég veit að enginn myndi nenna að vakna með spóa gargandi í eyrunum á sér á hverjum morgni. Veit ekki hvaða renæsance rómantík þetta er!! Þetta er allavega ekkert fyrir mig, þetta heyrir til í sumabústaðnum og á íslandi af því að þar syngja fuglarnir einfaldlega bara fallegar.... nema kanski helvítis kríurnar

0 kommentarer:

Send en kommentar

Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]

<< Start