tirsdag, maj 08, 2007

Skemmtilegt stundum að opna meil boksið, það eru ýmist meilar um tippalengjingar, hárlengingar, fitusog(HVER KJAFTAÐI) og nýjast nýtt frá einhverjum Ragga um góðan link á kristinfræðikennslu fyrir börn, hver er Raggi og hvenar bað ég hann um að senda mér link á það, svar óskast? Um daginn fékk líka meil frá Sigga (veit heldur ekki hver það er) sem keypti netáskrift dagsins af BT(dagblað) og leyniorðið væri svanborg, hefur fólk virkilega ekkert annað að gera, jeremíus!! Já en annars nýjasta nýtt, Verkefnið mitt og grúppunnar er greinilega bara á blússandi uppleið, já svona er þetta með verkfræðinga framtíðarinnar, maður er barasta búinn að þróa nýja teoriíu og liðið að missa sig yfir þessu eða kanski bara þessir 2 vejleder sem við erum með, spurning!! EN svo var ég búin í skólanum í dag, skutlaðist að ná í prinsessuna, búin að útrétta aðeins og langaði bara heim, en nei þá hafði ég gleymt helv.... lyklinum í skólanum og þar var hann læstur inni í grúppuherbergi. Enginn vildi fá okkur í heimsókn af þeim sem við hringdum í, hljótum að vera massa leiðinlegar þannig að við mæðgur héngum úti í bíl í ca 1.5 tíma að bíða eftir nilla greyinu. Það er kanski hægt að kalla þetta fyrir kvalití móment, he he. Já til að bjarga geðheilsunni fór frúin í eldhúsið og átti þar góða stund með sjálfri sér, dassaði fram falaffel, hummus og bulgur salat, Rakel elskar bulgur salat og hér kemur uppskrift af bulgur salati dagsins, sko ég nota aldrei nein mælitæki. Hér á heimilinu er allt dass, en ég skal reyna!!

Bulgursalat
2 dl. Bulgur, soðið eftir leiðbeiningum á pakka, síðan kælt
1/3 gúrka, skorin í litla teninga
1/2 paprika, skorin í litla teninga
1/2 búnt steinselja, fínt hakkað
1 lúka ruccola salat, fínt hakkað
sléttfull panna furuhnetur, léttsteiktar
gott dass af hökkuðum sólþurkuðum tómötum
gott dass af ferskum rifnum parmesanosti

Hrærist allt obboslega vel saman, til að flýta fyrir kælingu Bulgurs þá hendi ég bara pottinum út með gossinu í, þá er þetta fljótt að kælast..

5 kommentarer:

Anonymous Anonym sagde ...

þú ert svo mikill snillingur með þetta "dass"...ég barasta get ekki svoleiðis..

8. maj 2007 kl. 20.56  
Blogger Unknown sagde ...

hérna... ét spörgsmål... ekki er það sléttfullpanna af hnetum, er það ekki bara pönnubotninn hulin, veit að pannan hjá mér myndi þýða ca. 2-3kg ef ég sléttfylli hana...

9. maj 2007 kl. 09.39  
Blogger svanborg sagde ...

Jú hú auðvitað Helgi.. ég var einmitt búin að pæla í hvort fólk myndi misskilja, það er þú veist svona tæpleg botnfleti

9. maj 2007 kl. 11.49  
Anonymous Anonym sagde ...

Hahah.. gódur punktur!;) en gæti madur kannski fengid uppskriftina ad falaffel og hummus.. tydir ekkert ad segja frá einhverri svaka máltíd og koma svo bara med uppskrift af hluta máltídarinnar;) (eda var hitt kannski bara keypt í búd;) )

9. maj 2007 kl. 18.57  
Anonymous Anonym sagde ...

*slef slef*

p.s. skildi þig alveg með sléttfulla pönnu....

knúsar,

Skvís-ur.

9. maj 2007 kl. 23.54  

Send en kommentar

Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]

<< Start