lørdag, august 23, 2008

Jæja ég er bara á lífi - þetta hefur verið hin fínasta pása skal ég segja ykkur, múhahaha!

Ég fór inn á barnalandssíðuna hennar Rakelar og hún er bara hvít - skil það ekki alveg, vegna þess að ég hef ekkert fengið reikning um að borga eða neitt þess háttar. Er vön að fá reikning hér í ágúst og fæ þá alltaf sendann meil-er einhver þarna sem veit eitthvað um þetta barnalandsdæmi, hefur þetta eitthvað breyst? En ég hef nátturlega heldur ekkert uppfært hana í lengri tíma... já einfaldlega vegna þess að ég á ENGA myndavél - eigum við bara ekki að segja að sú blessun hafi látið lífi á karnevalinu ;) Hef mikið verið að skoða myndavélar undanfarið og ég get einfaldlega ekki alveg ákveðið mig, bara spurning um að kasta sér á eina tilboðsvél og fara að mynda okkar mjög svo athyglisverða líf svo að þið getið öll fylgst með okkur.

Síðan síðast hefur alltof mikið gerst til að ég nenni að skrifa það hér og ef þið vitið ekki allt um það þá hafið þið líklegast ekkert að gera hér ;) Þannig ég fer bara í startholurnar núna og skelli inn 3 myndir frá sumarfríinu okkar - þar var nátturlega hægt að taka myndir þar sem systa og fam.voru með slík tæki í förum sér.



Jæja þetta er alla vega byrjun sjáum hvort ég komi aftur með eitthvað gott áður en það líða nokkrir mánuðir ;)

Knús ég

3 kommentarer:

Anonymous Anonym sagde ...

já þú reyndar verður bara að koma með eitthvað mjög fljótlega...get alveg hugsað mér að vera hérna í kaffi mjög oft...þó svo að ég væri mest til í að fara í alvörunni kaffi til þín og Rakelar. En við verðum bara að láta þetta duga. Begs

23. august 2008 kl. 08.53  
Anonymous Anonym sagde ...

Flott hjá þér!! ...svo er alveg hægt að blogga þó að maður eigi ekki myndavél, skoi!!! hehe

Knús,

Eydís.

24. august 2008 kl. 02.37  
Anonymous Anonym sagde ...

Loksins.....gaman að sjá myndir líka...en já það er líka alveg hægt að blogga þrátt fyrir myndavélaleysi....ekki satt ?
Vona að allt gangi vel skan.
Kveðja...Guðný ;)

26. august 2008 kl. 10.01  

Send en kommentar

Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]

<< Start