fredag, maj 25, 2007

Það er svo mikið meira en nóg að gera á mínum bæ, brjálað að gera í skólanum - búnar að klára verkefnið, og byrjaðar á næsta, 3 próf framundan, vinna líka, fjölskyldan, karneval á morgun, vinna sunnudag, afmæli í dag!! Ekki alltaf nógur tími til að blogga en tíminn er eitt og viljinn er annað. Ég fékk frábæran pakka í rúmið í morgun, hvað haldið þið, einmitt það sem ég var búin að óska mér, Línuskautar og þess hátar komplet varúðarráðstafanir, vantar bara púða fyrir rassinn (er nú reyndar með innbyggðan)! Planið í dag er að sækja músina kl 14 og fara heim og skella sér á línuskauta, fá sér smá bollur og skella sér svo niður í bæ og sjá Battle of karnevals og förum svo 3 út að borða kl 19 30, ljúft og lækkert. Ég sé 30 nálgast óðfluga og er kanski pínu hrædd við að verða svona fullorðin, enda bara ný búin að eignast mína fyrstu uppvöskunarvél. Þangað til næst og hafið það gott um hvítasunnuna.

2 kommentarer:

Blogger theherms sagde ...

Til hamingju með "huhum" 25 ára afmælið..:) Hjálpar þetta?
tíminn líður allt of hratt..ég er svo sammála þér með það. Farðu þér svo ekki að voða á skautunum :Þ
Begga / síams

25. maj 2007 kl. 07.57  
Anonymous Anonym sagde ...

Velkomin á 29. árið... líst betur á að verða þrítug með hverjum deginum! Hafðu það gott í dag, knús og kram :*
x día

25. maj 2007 kl. 13.09  

Send en kommentar

Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]

<< Start