fredag, juni 01, 2007

Varð bara að loka á comments í síðasta bloggi vegna þess að það voru alltof margar afmæliskveðjur, 2!! En ég átti alveg yndislegan afmælisdag með barni og manni, við Rakel dössuðum í eina hnallþóru og skelltum okkur á línuskauta, síðan var leiðinni haldið í bæinn að horfa á Karneval keppnina og svo út að borða, sem sagt yndislegur dagur með góðu fólki. Daginn eftir var svo Karneval og það var nú ekkert lítið skemmtilegt eins og vanalega, skrúðgangan sem 80 ára þýsk íþróttaskvísa með grifflur og alles, kildeparken í snilldarsólskyni með snilldarfólki, nóg af bjór og góðri stemmingu, heim að sofa um 22 alveg búin á því! Síðan þá er bara búinn að vera hardcore lærdómur, var að skila af mér síðustu 2 verkefnunum sem að gilda sem próf, þannig að nú er bara að krossa fingur. Núna er síðan stærfræðikursus og ég veit ekki alveg hvar heilinn á mér hefur verið undanfarna mánuði - alla vega ekki í stærfræði. Veit heldur ekkert hvað ég á að nota þetta rugl í, þannig að framundan er líklegast fyrsta fallið á síðustu 5 og hálfu árinu, þar sem ég hef stundað nám. En það má nú bjarga því með endurtektarprófi, he he!! Síðan eru 3 próf, 1 í samfundsfag, 1 í verkefninu og já stærfræðidjöfullinn sjálfur. Snillingurinn hún Sunneva frænka mín er síðan að mæta á miðvikudaginn til stóru frænku og ætlar að hjálpa mér með Rakel meðan að ég verð í prófunum - það er bara snilld. Við eigum eftir að hafa það svo huggó saman skvísurnar, það er bara verst fyrir Niels hann á fullt í fangi fyrir með 2 skvísur!!

3 kommentarer:

Anonymous Anonym sagde ...

þú varst nú ekkert að auglýsa það neitt, til hamingju með daginn um daginn :)iss eitt endurtektarpróf á 5 árum það er ekki neitt

2. juni 2007 kl. 13.46  
Anonymous Anonym sagde ...

Jii...sorrý elskan! Til hamingju með daginn, sæta! Og alltaf gaman að verða 23....aftur og aftur og aftur....

knúsur,

Skvís-ur.

3. juni 2007 kl. 11.41  
Anonymous Anonym sagde ...

Oh hvað var gaman á karneval, ég gaf þér nú afmælisknús þá:-)

Anyways gangi þér vel með lærdóminn!

5. juni 2007 kl. 09.52  

Send en kommentar

Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]

<< Start