Jæja þá er maður bara mættur í rigninguna í dk, en það er nú varla hægt að klaga þar sem að við vorum bara í sól og sumaryl á íslandinu góða. Það var rosalega gott að koma "heim" og eyða tíma með öllum, mér finnst bara svo skrítið hvað tíminn líður alltaf hratt og áður en ég veit af þarf ég að fara aftur heim til mín og alls ekki búin að ná kanski að hitta alla. En svona er það bara, það er bara spurning um að vera sáttur við það sem maður nær og svo verður maður nátturlega að velja og hafna. Við völdum nátturlega bara fyrir það mesta familíuna, enda er þetta eðal familía sem ég á! Ég er alltaf mikið að hugsa um íslandsflutninga þegar að ég fer þangað og fæ stundum alveg hnút í magann yfir því, hvernig ég á að geta flutt til Íslands, eða sko Reykjavíkur. En allt er bara svo ógó dýrt þar og allir virðast bara eiga skít nóg af seðlum, það vantar engum neitt. Það er bara allt keypt og ég meina afmælisveislur eru á borð við það sem ég myndi kalla góða fermingu!! En ég verð bara að halda í mín gildi og reyna að sleppa við að hoppa á bylgjuna þótt að maður verði ábyggilega alveg eins og hinir eftir bara smá tíma, maður er þó einu sinni íslendingur. En þangað til ætla ég bara að njóta þess að lifa "the easy life" í dk. Núna er ég bara að hygge mér í sumarfríi, Rakel hjá pabba sínum og Niels að vinna og ég bara despo houswife sem hefur voða lítið að gera, annað en að dúlla mér í bænum og ræktinni og svona, verð kanski ógeðslega slim bara eftir sumarfríið, ja hver veit? Fórum síðasta sunnudag á Gron Koncert, sem að er svona 1 dags "festival", æi maður kemst heim í sturtu eftir alla rigningu, það er bónusinn við að þetta er bara 1 dagur. Það var alveg mjög gaman eins og alltaf þó svo að það ringdi alveg nóg og ég var alveg pínulítið blaut eftir daginn, ég læt fylgja nokkrar myndir (þær eru allar teknar á símann, þannig að gæðin kanski ekki alveg max góð), síðan er ég að fara að henda inn myndum frá klakanum á barnalandið. Góða helgi og til hamingju með daginn í dag Pétur mágur, knus
Sumir leggja mismikið upp úr make uppinu, eins og tildæmis að skella smá á sig í strætó er alls ekkert auka atriði hjá Stefanie
Jæja þarna kom rigningin, maður var smá jákvæður í byrjun og vonaðist nátturlega til þess að regnhlífin væri bara alveg nóg.
Sæta skvís
Svo kom eiginlega bara frekar mikil rigning en við erum jákvæð og mér sýnist Jonas og Niels bara vera í essinu sínu. Jonas var í stærsta regnslagi sem ég hef séð og ég hef nú séð margt!
Niels.. hvað ertu að hugsa???
Sumir leggja mismikið upp úr make uppinu, eins og tildæmis að skella smá á sig í strætó er alls ekkert auka atriði hjá Stefanie
Jæja þarna kom rigningin, maður var smá jákvæður í byrjun og vonaðist nátturlega til þess að regnhlífin væri bara alveg nóg.
Sæta skvís
Svo kom eiginlega bara frekar mikil rigning en við erum jákvæð og mér sýnist Jonas og Niels bara vera í essinu sínu. Jonas var í stærsta regnslagi sem ég hef séð og ég hef nú séð margt!
Niels.. hvað ertu að hugsa???

2 kommentarer:
Djöfull hefur verið mikið stuð hjá ykkur :) party on!
FLYTJA til Íslands ???....æji... í guðanna bænum gerið það bara... sakna ykkar svo svakalega mikið. Kolbrún mín yrði nú ekkert smá sátt að fá hana Rakel sína hingað.
Söknum ykkar endalaust.
Send en kommentar
Abonner på Kommentarer til indlægget [Atom]
<< Start